Job Openings Rekstrarstjóri verslana ZO-ON

About the job Rekstrarstjóri verslana ZO-ON

ZO-ON óskar eftir að ráða áreiðanlegan og drífandi rekstrarstjóra verslana. Rekstrarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, mannauði og skipulagningu vaktaplans auk þess sem hann tekur þátt í afgreiðslu, þjónustu og öðrum störfum í verslunum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri verslana
  • Ábyrgð á starfsmannamálum ásamt skipulagningu og utanumhaldi vaktaplana
  • Umsjón með framsetningu og uppröðun í verslun
  • Uppgjör og frágangur í verslun
  • Aðstoð við viðskiptavini

Menntun og hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi og stjórnun
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Brennandi áhugi á sölumennsku
  • Góð leiðtogahæfni
  • Góð tölvukunnátta

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.